Bláorka
Allar fréttir
Verkefni

Þriggja fasa hús með sólarorku

Þriggja fasa hús með sólarorku

NetBerg kláraði nýlega uppsetningu á þriggja fasa kerfi fyrir hús sem er ekki tengt raforkunetinu. ⚡️

Með þessari uppsetningu er húsið eins og hvert annað heimili með næga orku í boði fyrir öll helstu tækin.

Húsið er kynnt með mjög sparneytinni varmadælu. 🌞

Raforka inn á þetta kerfi er framleidd með sólarsellum og stórri dísel rafstöð sem fer örsjaldan í gang ef sólarorkan er ekki næg og hleður batteríin upp á skömmum tíma.

Í þetta kerfi var notaður eftirfarandi búnaður:

  • 3x Victron MultiPlus-II 48/5000
  • Victron SmartSolar MPPT 250/100
  • Victron Lynx DC dreifiskinnur
  • Victron Cerbo + Touch skjár
  • 2x NetBerg 48v 200Ah rafgeymabanki – 20 kWst af orku þar.
  • Himoinsa 16kW þriggja fasa rafstöð
  • Svo allskonar töflubúnaður og skemmtilegt dót í kringum þetta 🙂