
Lausnir
Frá einni sellu upp í heila eyju
Við hönnum hvert kerfi út frá aðstæðum, notkun og framtíðarþörfum. Hér eru algengustu tegundir verkefna sem við tökum að okkur.

Heimili & sumarhús
Sólarorka sem borgar sig – og heldur ljósunum kveiktum í rafmagnsleysi.
Við hönnum og setjum upp sólarorkukerfi með rafgeymum fyrir heimili og sumarhús. Kerfin nýta sólina þegar hún skín, geyma orkuna í LiFePO4 rafgeymum og grípa sjálfkrafa inn í ef rafmagnið fer af.
Skoða lausn
Ótengd kerfi (off-grid)
Fullt þriggja fasa rafmagn – hvar sem er á landinu.
Fyrir staði sem ekki eru tengdir raforkunetinu smíðum við sjálfstæð kerfi sem sameina sól, vind og rafstöð. Kerfið stýrir sjálft hvenær rafstöðin fer í gang og nýtir alla umframorku, til dæmis í rafbílahleðslu eða hitun.
Skoða lausn
Húsbílar & bátar
Sjálfbær ferðalög – án þess að leita að rafmagni.
Við smíðum heildarkerfi í húsbíla, ferðavagna og báta: LiFePO4 rafgeymar, áriðlar, DC-DC hleðsla frá alternator og sólarsellur á þaki. Allt tengt, stillt og prófað áður en það fer út úr húsi.
Skoða lausn
Fyrirtæki & fjarskipti
Áreiðanleg orka fyrir fjarskiptastaði, sendamöstur og rekstur.
Við höfum unnið með Neyðarlínunni, Mílu, björgunarsveitum og fleirum að lausnum sem tryggja rafmagn á afskekktum fjarskiptastöðum, draga úr olíunotkun og lengja endingu búnaðar. Sömu lausnir henta fyrirtækjum sem vilja varaafl og betri nýtingu á grænni orku.
Skoða lausn
Plug n' Play töflur
Tilbúin rafmagnstafla – tengd, stillt og merkt.
Í stað þess að finna upp hjólið færðu tilbúna töflu frá okkur með öllum búnaði uppsettum, ásamt nákvæmri tengiteikningu. Búnaðurinn er stilltur fyrir þínar þarfir áður en hann fer úr húsi.
Skoða lausn
Raforkubankar
Bláorku LiFePO4 rafgeymar – orkugeymsla sem endist.
Okkar eigin LiFePO4 rafgeymabankar, 48 V 200 Ah (10 kWst), eru hjartað í flestum kerfum sem við smíðum. Þeir þola þúsundir hleðsluhringja, eru öruggir og hægt er að raða þeim saman í 20, 30 eða 40+ kWst banka.
Skoða lausnPassar ekkert af þessu?
Flest verkefni eru blanda – segðu okkur frá þínu og við setjum saman tillögu.
