Virkar sólarorka á Íslandi?
Já. Sumarmánuðina er birta nánast allan sólarhringinn og kerfin okkar framleiða þá langt umfram þörf. Yfir dimmustu vetrarmánuðina er framleiðslan lítil og þá þarf rafstöð eða vindmyllu til viðbótar í ótengdum kerfum.
Hvað endist LiFePO4 rafgeymir lengi?
Miðað við daglega notkun eru 6000 hleðsluhringir um 15+ ár. Rafgeymirinn hættir ekki að virka þá heldur minnkar rýmdin hægt niður í ~80 %.
Setjið þið kerfin upp?
Við hönnum kerfið, smíðum töfluna og forstillum búnaðinn. Uppsetning fer eftir umfangi og staðsetningu – hafðu samband og við finnum bestu leiðina.
Get ég stækkað kerfið síðar?
Já, kerfin eru mátanleg. Hægt er að bæta við rafgeymum, sellum eða MPPT stýringum eftir því sem þarfir breytast.
Viltu ræða þitt kerfi?
Við hjálpum þér að velja réttan búnað – engin skuldbinding.

