Bláorka

Fróðleikur

Sólarsellustýringar – MPPT og PWM

Stýringin sér um að hlaða rafgeymana rétt. Hér er munurinn á MPPT og PWM útskýrður.

6 mín lestur

Hvað er sólarsellustýring?

Sólarsellustýringar (e. solar charge controllers) eru mikilvægur hluti af sólarsellukerfum og sjá um að stjórna hleðslu og afhleðslu rafgeyma til að hámarka skilvirkni og lengja endingartíma þeirra. Þær tryggja að rafgeymar séu ekki ofhlaðnir eða tæmdir um of, sem getur skemmt þá og dregið úr afköstum kerfisins.

Hverju þarf að huga að við val?

  • Spennusamhæfi – stýringin þarf að passa við spennu sólarsellunnar (12 V, 24 V, 48 V) og spennu rafgeymanna.
  • Hámarksstraumur (A) – stýringin verður að ráða við hámarksafköst sellunnar. Ef sellan gefur 20 A í hámarki ætti stýringin að þola a.m.k. 25 A.
  • Gerð stýringar – MPPT eða PWM (sjá hér að neðan).
  • Notkun – hús, farartæki eða iðnaður kallar á ólíkar stýringar.
  • Aukaeiginleikar – skjár, Bluetooth, snjallstýring, VRM fjarvöktun.

MPPT (Maximum Power Point Tracking)

MPPT-stýringar eru hannaðar til að hámarka orkunýtingu með því að fylgjast með og vinna með hámarksaflpunkti sólarsellunnar. Þær taka við háspennu (t.d. 18–450 V) frá sellum og umbreyta henni í lægri spennu fyrir rafgeymana með því að auka strauminn – án þess að tapa orku.

  • 90–99 % nýtni
  • Leyfir háspennustrengi og lengri kapla
  • Nauðsynleg fyrir stærri kerfi og íslenskar aðstæður með breytilegri birtu

PWM (Pulse Width Modulation)

PWM-stýringar virka með því að kveikja og slökkva á straumnum í púlsum. Spenna sellunnar þarf að passa við spennu rafgeymanna, og þar sem umframspenna er ekki nýtt fer töluverð orka til spillis. Þær eru ódýrari og henta litlum kerfum.

Viltu ræða þitt kerfi?

Við hjálpum þér að velja réttan búnað – engin skuldbinding.